Gleðilegt nýtt ár.

Ég óska bloggvinum gleðilegs nýs árs og þakka fyrir það gamla.

Skattborgari.


Er Kristinn H Gunnarsson á eiturlyfjum???

Það er víst umdeilt hvort þetta hafi verið Kristinn eða einhverjir húmoristar að skrifa í nafni hans og ef svo er þá hafa þeir sennilega verið að sýna fram á að hvað það er auðvelt að skrifa undir nafni annara manna.

Ég er búinn að lesa nokkur komment eftir hann í kvöld og ég trúi ekki öðru en að maðurinn sé á dópi því að enginn heilvitamaður lætur svona frá sér eins og hann er búinn að vera að gera í kvöld.

Ég held að hann ætti að fara beina leið á geðdeild landsspítalans.

"Mega börnin horfa á næst þegar ég þú og maðurinn þinn ***** það???" Hvaða heilvita maður skrifar svona hjá giftri konu?

Svo er hann að tala um kynmök með Jóni Magnússyni!!! Maðurinn er ekki í lagi.

Skattborgari.


Af hverju erum við að halda úti Rúv í dag?

Hvernig stendur á því að Rúv getur ekki sýnt einn almennilegan þátt um Kárahnjúkavirkjun sem er stærsta framkvæmd Íslandsögunar og að ég þurfi að horfa á National Geographic til að sjá vandaðan þátt um smíði hennar? Þetta er bara eitt dæmið í viðbót sem sýnir það að það má leggja Rúv niður.

Skattborgari.


Vegna ritskoðunar mun ég hætta að blogga á Blog.is.

Af því að ég kem ekki fram undir nafni þá mun ég frá og með 1 jan ekki sjást á neinum lista og ekki geta bloggað um fréttir og mun þess vegna ekki getað komið minni skoðun á framfæri.

Ég mun hætta að blogga hér um áramótin og færa mig yfir á  http://skattborgari.blogcentral.is/ eða http://blogg.visir.is/skattborgari/ og skora á þá sem eru á móti þessari breytingu (skoðanakúgun) að færa sig annað.

Ég vil þakka bloggvinum fyrir skemmtilega umræðu og góða bloggvinátu og mun fylgjast með ykkur til að byrja með.

Kveðja Skattborgari.


Stupid Brain Syndrome

Eitt drep fyndi myndband sem ég fann á You Tube.

Skattborgari.


Nú eiga skattborgarar að borga hluta skulda sjávarútvegsins.

Nú á að fella niður hluta skulda sjávarútvegsins til að hjálpa þeim. Ef þessar skuldir verða felldar niður þá lenda þær á skattgreiðendum því að einhver þarf að borga þær með einhverjum hætti.

Í hvað voru þessir peningar notaðir? Svarið er einfalt til að kaupa kvóta sem ríkið gaf upphaflega. Ég get samþykkt að þessar skuldir verði felldar niður ef þjóðin fær kvótann og þá á að setja hann á leigumarkað þar sem allir geta boðið í hann og leiguverðið látið borga af lánunum.

Ætli ég geti fengið 40% af íbúðarláninu niðurfellt? Svarið er nei.

Skattborgari.


mbl.is Kröfur verði felldar niður að hluta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rosalega sniðugt að skíra barnið sitt Adolf Hitler eða þannig.

Aumingja barnið að heita Adolf Hitler og systirin að heita Aryan Nation Campbel. Það er mjög algengt að börn noti allt sem þau finna til að stríða hvert öðru og ef þessi nöfn valda ekki stríðni þá veit ég ekki hvaða nöfn gera það.

Aumingja börnin að þurfa að líða fyrir heimsku foreldra sinna á þennan hátt.

Skattborgari.


mbl.is Engin terta fyrir Hitler
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Páfagaukar eru skemmtileg gæludýr en 1700stk er aðeins of mikið.

Það er gaman að vera með páfagauka sem gæludýr en það má fara einhvern milliveg.

Hér koma nokkur skemmtileg myndbönd sem sýna vel tamda páfagauka.

 

 


mbl.is Bjó með 1.700 páfagaukum í lítilli íbúð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nokkur fyndin myndbönd af vörubílum í vandræðum.

Hér má sjá einn vörubíll sem nær ekki einni beygju.

 

Skemmtileg auglýsing frá lögfræðingi.

Vörubíll fastur í drullu.

Skattborgari.


Ekki er ég hissa á 30%karla vilji frekar vera án kynlífs en internetsins.

Ofboðslega skil ég fólk vel að vilja frekar vera án kynlífs en internetsins því að það er miklu þægilegra að vera fyrir framan hana en að standa í því að leita sér að maka eða þurfa alltaf að gera málamiðlanir.

Ég verð nú að segja að ég tek netið og tölvuna framyfir að vera með konu enda engin tilfinningaþvæla og þannig vesen.

Skattborgari.

 


mbl.is Velja netið frekar en kynlíf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband